Flýtilyklar
GRUNNNÁMSKEIÐ Í ÁGÚST
Eftirfarandi námskeið hefjast í ágúst:
- Víkingaþrek 101 hefst þriðjudaginn 9. ágúst kl. 19:00 (þri og fim)
- Kickbox 101 hefst þriðjudaginn 9. ágúst kl. 20:00 (þri og fim)
- Valshamur 101 hefst þriðjudaginn 9. ágúst kl. 18:00 (þri og fim)
Athugið að einnig er búið að opna fyrir skráningu á grunnnámskeið sem hefjast í september, Mjölnir 101 og Box 101.
Barna- og unglingaönnin mun einnig hefjast í byrjun september. Námskeið fyrir 5-8 ára og 8-13 ára munu hefjast 5. og 6. september, MMA 101 fyrir unglinga mun hefjast 6. september og framhalds hópur unglinga mun byrja nýja önn 5. september.
Meðlimir Mjölnis sem vilja skrá þig á grunnnámskeið skulu hafa samband við Móttöku Mjölnis, þar skrá þeir sig og greiða staðfestingargjald.
Innifalið í verði ofangreindra 101 námskeiða er ein vika í Mjölni eftir að grunnnámskeiði lýkur. Þeir sem sækja grunnnámskeið í Mjölni mega einnig mæta í Goðaaafl, sem er alla virka daga, Mjölnisyoga, sem er alla 7 daga vikunnar, og hafa aðgang að sánu eftir æfingar.
Athugið að skráning á námskeið er ekki endanleg fyrr en hefur verið greitt!
Sjá nánari upplýsingar um gjaldskrána.
Skráning fer fram í hér á Mjölnisvefnum undir hverju grunnnámskeið fyrir sig en iðkendur skrá sig í móttöku Mjölnis. Skráning á barna- og unglinganámskeiðin fer fram í móttöku Mjölnis eða gegnum netfangið mjolnir@mjolnir.is
Nánari upplýsingar fást í móttöku Mjölnis eða gegnum mjolnir@mjolnir.is.