Flýtilyklar
Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur
Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur sem Mjölnir heldur í samstarfi við lögregluna.
Fjölmargir aðilar hafa aðkomu að því að leiðbeina á námskeiðinu en Sunna Rannveig Davíðsdóttir bardagakona keyrði námskeiðið af stað á sínum tíma og skipulagði dagskrá námskeiðsins. Það var afar nærtækt að Sunna leiddi námskeiðið þar sem hún byrjaði upphaflega að æfa bardagaíþróttir til að geta varið sjálfa sig og þessi málaflokkur hefur lengi verið henni hugleikinn.
Á námskeiðinu, sem er tvisvar í viku í sex vikur, er hvort tveggja horft á líkamlega þáttinn og andlega þáttinn. Á námskeiðinu er farið í ýmsa tækni sem nýtist við sjálfsvörn og sjálfsstyrkingu. M.a. verður farið í varnir gegn höggum, hvernig á að losa grip, hvernig hægt er að sleppa undan ef einhver kemst ofan á og ýmis önnur tök og tækni til sjálfsvarnar.
Þá verður einn tími fyrir slökun, yoga og öndunaræfingar. Engar myndir eða myndbönd sem sýna þátttakendur á námskeiðinu verða tekin upp á meðan námskeiðinu stendur.
Næsta námskeið:
- 14. okt. - 20. nóv. 2024
Þjálfarar: Áslaug María Dungal, Margrét Inga Þorláksdóttir, María Dögg Nelson, Inga Birna Ársælsdóttir og fleiri.
Verð má finna hér á vefnum undir Æfingagjöld