Flýtilyklar
MMA 101
MMA 101er 6 vikna grunnnámskeið í MMA. Á námskeiðinu er farið í grunninn á helstu bardagaíþróttunum svo sem brasilísku jiu-jitsu, striking, wrestling og hvernig má blanda þessu öllu saman.
Áherslan er lögð á tæknilegar æfingar þar sem ákefðin er byggð upp hægt og rólega en enginn þarf að óttast það að fá í sig þung högg á námskeiðinu. Tæknilegu æfingarnar snúast að t.d. fellum (upp við búr og út á gólfi), einföld högg og spörk, yfirburðastöðum úr jiu-jitsu sem henta vel í MMA, varnir frá botninum og margt fleira.
Námskeiðið hentar bæði fyrir þá sem hafa engan bakgrunn í bardagaíþróttum og fyrir þá sem hafa bakgrunn úr öðrum bardagaíþróttum en vilja tengja íþróttirnar saman. Hver tími endar alltaf á skemmtilegri keyrslu í lokin þannig að allir ættu að læra helling og taka vel á því! Innifalið í námskeiðinu er einnig aðgangur að bardagaþreki á föstudögum kl. 12:10
Eftir námskeiðið er hægt að fara í MMA 201 tímana samkvæmt stundaskrá.
Næsta námskeið - 3. des. (6 vikur):
Kennsla fer fram á:
Fyrstu 4 vikurnar á námskeiðinu fara fram á:
- þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:00
Síðustu 2 vikurnar á námskeiðinu fara fram á:
- þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:00
Innifalið í grunnnámskeiði: Innifalið í verði 101 námskeiða eru tvær vikur í Mjölni eftir að grunnnámskeiði lýkur. Innifalið er einnig aðgangur að yoga tímum, Goðaafli, heitum potti, köldum potti, sánu og lyftingar- og þrekaðstöðu.
Þjálfari: Julius Bernsdorf, Gunnar Nelson o.fl.
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- Tannhlíf
- MMA æfingarhanskar (6 únsu)
- Stuttbuxur og bolur
Þú getur skráð þig strax í meðlimaáskrift en þá færðu eitt grunnnámskeið (101) frítt með 6 mánaða eða lengri binditímaáskrift. Meðlimir í fastri meðlimaáskrift (6 mánaða binditími eða lengur) fá 50% afslátt af 101 grunnnámskeiðum og aðgang að öllum opnum tímum.