Flýtilyklar
BJJ 101
Brasilískt Jiu Jitsu 101 er grunnnámskeið í Brasilísku Jiu-Jitsu (BJJ) sem er undirstaða þjálfunar og færni í blönduðum bardagalistum (MMA) og sjálfsvörn. BJJ er glímuíþrótt sem fer hratt vaxandi alls staðar í heiminum og hefur reynst vel í keppnum og er af mörgum talin ein besta sjálfsvörn sem hægt er að læra. Á námskeiðinu er farið í öll grunnatriði íþróttarinnar ásamt ýmis uppgjafartök, hvernig á að koma sér úr slæmum stöðum, nokkrar fellur og fleira. Þetta er frábær leið til að fara aðeins út fyrir þægindarammann sinn og gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Að loknu námskeiðinu býðst svo þátttakendum að mæta í framhaldstíma BJJ 201 og uppgjafarglímu Nogi 201.
BJJ 101 námskeiðið sem er á kvöldin er sex vikna langt en námskeiðið sem kennt er í hádeginu er fjögurra vikna langt og er kennt samkvæmt stundarskrá.
Næstu námskeið - 3. des (6 vikur):
Kennsla fer fram á:
Fyrstu 4 vikurnar á námskeiðinu eru kenndar á:
- þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:15
Síðustu 2 vikurnar á námskeiðinu eru kenndar á:
- mánudögum og miðvikudögum kl. 19:30
Innifalið í grunnnámskeiði: Þeir sem sækja BJJ 101 geta mætt í Open Mat tíma sem eru opnir drilltímar fyrir iðkendur sem vilja koma og glíma. Innifalið er einnig aðgangur að heitum potti, köldum potti, sánu og lyftingaraðstöðu.
Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Brazilian Jiu Jitsu
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol)
- tanngómur (ekki nauðsynlegt en má hafa í tímum)
- punghlíf (ekki nauðsynlegt en má hafa í tímum)
Þjálfarar: Kristján Helgi Hafliðason, Bjarki Ómarsson o.fl.
Þú getur skráð þig strax í meðlimaáskrift en þá færðu eitt grunnnámskeið (101) frítt með 6 mánaða eða lengri binditímaáskrift. Meðlimir í fastri meðlimaáskrift (6 mánaða binditími eða lengur) fá 50% afslátt af 101 grunnnámskeiðum og aðgang að öllum opnum tímum.