Flýtilyklar
Kickbox 101
Kickbox 101 er frábært 6 vikna grunnnámskeið. Farið er yfir öll helstu spörk og högg, varnartilbrigði og fótaburð ásamt því að læra vel á það hvernig unnið er með tæ-púða og skyldi. Námskeiðið er þrepaskipt þar sem hvert kennsluatriði leiðir að öðru og fá iðkendur að æfa sig vel á tækninni sem kennd er bæði í pörum og með einstaklingsæfingum.
Þegar líða tekur á námskeiðið flétta iðkendur tækninni sem þeir hafa lært inn í létt sparr þar sem blandað er saman varnartaktík og sókn á móti andstæðing. Mikið er lagt uppúr öryggi iðkenda en strax í upphafi námskeiðsins fá iðkendur kynningu á öryggisatriðum og staðalbúnaði sem fylgja íþróttinni. Að loknu námskeiði býðst svo iðkendum að halda áfram í Kickbox 201 sem er framhaldsnámskeið. Haldið er uppi Facebook síðu fyrir hvert grunnnnámskeið þar sem deilt verður kennslumyndböndum og auglýstir viðburðir á vegum Mjölnis.
Námskeiðið er ýmist á kvöldin eða í hádeginu. Innifalið í námskeiðinu er aðgangur að bardagaþreki á föstudögum kl. 16:15.
Næsta námskeið - 2. des (6 vikur):
Kennsla fer fram á:
Fyrstu 4 vikurnar á námskeiðinu fara fram á:
- mánudögum og miðvikudögum kl. 18:15
Síðustu 2 vikurnar á námskeiðinu fara fram á:
- mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00
Innifalið í grunnnámskeiði: Innifalið í verði 101 námskeiða eru tvær vikur í Mjölni eftir að grunnnámskeiði lýkur. Innifalið er einnig aðgangur að yoga tímum, Goðaafli, bardagaþreki, heitum potti, köldum potti, sánu og lyftingar- og þrekaðstöðu.
Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Box & Kickbox
Markmið: Að iðkendur auki skilning sinn á líkamsbeitingu við iðkun íþróttarinnar svo það nýtist þeim bæði í framhaldstímum og blönduðum bardagaíþróttum (MMA).
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- tannhlífar
- vafningar
- boxhanskar (mælt með, annars eru lánshanskar í boði)
- legghlífar (mælt með)
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol)
Þjálfarar: Julius Bernsdorf o.fl.
Þú getur skráð þig strax í meðlimaáskrift en þá færðu eitt grunnnámskeið (101) frítt með 6 mánaða eða lengri binditímaáskrift. Meðlimir í fastri meðlimaáskrift (6 mánaða binditími eða lengur) fá 50% afslátt af 101 grunnnámskeiðum og aðgang að öllum opnum tímum.