Keppnislið Mjölnis (2014) from Mjolnir MMA on Vimeo.
Keppnislið Mjölnis er hópur iðkenda sem hefur það markmið að keppa í bardagaíþróttum og gera þær jafnvel að atvinnu sinni. Til að eiga möguleika á því að komast inn í keppnisliðið þarf viðkomandi að standast ákveðna inntökukröfur og vera samþykktir af þjálfurum liðsins. Mjölnir sendir meðlimi keppnisliðsins reglulega í ferðir erlendis til að keppa og er ferðakostnaðurinn greiddur af félaginu. Framkvæmdastjórn MMA liðsins er í höndum Haraldar Dean Nelson en þjálfarar liðsins eru John Kavanagh, Gunnar Nelson, Luka Jelcic og fleiri.
Meðlimir keppnisliðs Mjölnis eru þeir einu sem mega bera merki liðsins. Merkið á sér gamla og kröftuga arfleið enda er það tákn fyrir galdrastafinn Þórshamar (Mjölnir). Stafurinn var talinn vera sá allra kröftugasti og notaður í gamla daga til þess að leita uppi þjófa. Ákveðin athöfn átti sér stað og að henni lokinni blindaðist þjófurinn. Var m.a. farið með þessi orð: "Rek ég í augu Vígföður (Týr), rek ég í augu Valföður (Óðinn), rek ég í augu Ásaþórs (Þór)."