Flýtilyklar
EGILL EVRÓPUMEISTARI
Egill Øydvin Hjördísarson tryggði sér í dag gullið á Evrópumótinu í MMA í Prag. Egill kláraði andstæðing sinn með hengingu í 2. lotu.
Þetta er frábær árangur hjá Agli en þetta var fjórði bardaginn hans á fjórum dögum á mótinu.
Bardaginn byrjaði vel fyrir Egil og náði hann nokkrum fínum höggum á hinn pólska Pawel Zakrzewski. Zakrzewski sótti í „clinchið“ og voru þeir í „clinch“ baráttu út lotuna sem var nokkuð jöfn en Egill náði inn nokkrum góðum hnéspörkum. Egill varðist fellutilraun Zakrzewski í lok lotunnar og vann sennilega lotuna.
Í 2. lotu skaut Zakrzewski í fellu sem Egill varðist vel og náði okkar maður í kjölfarið að taka bakið snemma í lotunni. Egill reyndi að komast undir hökuna til að ná hengingunni en Zakrzewski varðist vel. Egill hélt sér á bakinu alla lotuna en þegar skammt var eftir af lotunni fór hann aftur í henginguna og kláraði Zakrzewski þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir af lotunni.
Egill er því Evrópumeistari í léttþungavigtinni og er þetta hreinlega frábær árangur hjá honum. Þá vann Magnús Ingi til bronsverðlauna í veltivigt á mótinu en alls tóku átta Íslendingar úr Mjölni þátt.