Flýtilyklar
NÆSTU NÁMSKEIÐ
NÝTT - KOMDU Í ÁSKRIFT OG FÁÐU GRUNNNÁMSKEIÐ FRÍTT!
- Í áskrift (6 mánaða binditíma eða lengur) fylgir eitt grunnnámskeið að eigin vali. Eftir það fá meðlimir 50% afslátt af grunnnámskeiðum.
- Hafðu samband við móttöku Mjölnis til að nýta afsláttinn. - mjolnir@mjolnir.is
Einnig innifalið í áskrift:
-
Aðgangur að yfir 100 opnum tímum í viku (að því gefnu að þú hafir klárað grunnámskeið í viðkomandi grein og/eða hafa náð viðeigandi getu/reynslu).
- Aðgangur að Útgarði (lyftingaraðstaða/CrossFit salur Mjölnis).
- Aðgangur að heitum og köldum potti og sánu.
- Aðgangur að Yoga.
- Aðgangur að opnum tímum í MoveLab hreyfiþjálfun.
- Aðgangur að Gryfjunni (boxpúðasvæði og lyftingaraðstaða).
-
Færð að bjóða vini með þér á æfingu FRÍTT 1x í mánuði.
- Afslætti á ýmis námskeið og viðburði.
- OG MIKLU FLEIRA…
Ný önn í barna- og unglingastarfi Mjölnis hefst 2. og 3. september en hér má sjá þau námskeið sem eru í boði fyrir börn og unglinga.
Næstu grunnnámskeið:
- MMA 101 á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:00.
- Hefst í byrjun hvers mánaðar (6 vikur). Næsta námskeið er 3. des.
- BOX 101 á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:15.
- Hefst 2. Des (6 vikur)
- BJJ 101 á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:15.
- Hefst í byrjun hvers mánaðar (6 vikur). Næsta námskeið er 3. des.
- Víkingaþrek 101 á mánudögum, miðvikudögum kl. 19:15 og föstudögum kl. 18:15 og einn laugardag kl. 11:00.
- Hefst í byrjun hvers mánaðar (3 vikur + 2 vikur aðgangur í Mjölni eftir námskeiðið). Næsta námskeið er 2. des.
- Kickbox 101 á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:15.
- Hefst í byrjun hvers mánaðar (6 vikur). Næsta námskeið er 2. des.
SJÁLFSVARNARNÁMSKEIÐ FYRIR KONUR
-
Á námskeiðinu er farið í ýmsa tækni sem nýtist við sjálfsvörn og sjálfsstyrkingu. M.a. verður farið í varnir gegn höggum, hvernig á að losa grip, hvernig hægt er að sleppa undan ef einhver kemst ofan á og ýmis önnur tök og tækni til sjálfsvarnar.
- Næsta námskeið er 14. okt. - 20. nóv.
- BJJ 101 FYRIR 35+ á mánudögum og miðvikudögum kl. 20:30 hefst: 9. september (8 vikur + 3 vikur aðgangur í Mjölni eftir námskeiðið).
FREYJUAFL - MÖMMUTÍMAR OG MEÐGÖNGULEIKFIMI
- Freyjuafl fyrir nýbakaðar og verðandi mæður er innifalið í áskrift en tímar eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 10:30
Innifalið í verði ofangreindra 101 námskeiða er 2-3 vikur (misjafnt eftir námskeiðum) í Mjölni eftir að grunnnámskeiði lýkur. Einnig er innifalið aðgangur að sánu og heitum og köldum pottum.
Þeir sem skrá sig strax í meðlimaáskrift mega einnig mæta og í alla opna tíma (Yoga, MoveLab og þá tíma sem viðkomandi hefur grunnþekkingu til að mæta í) og nota lyftingaraðstöðu Mjölnis.
Barna og unglingastarf Mjölnis
Ný barna- og unglinga önn hefst 3. og 4. júní samkvæmt stundarskrá.
Á sínum stað verða tímar fyrir yngstu hópana börn 5-8 ára og börn 8-13 ára. Tekið verður við nýjum iðkendum í byrjun annar svo foreldrar eru hvattir til að ganga frá skráningu sem fyrst.
MMA 101 fyrir 13-17 ára mun hefjast samkvæmt stundaskrá, nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér. Unglingastarfið fyrir framhaldshóp MMA 201 verður einnig á sínum stað alla daga vikunnar.
Box 101 fyrir unglinga, 12-17 ára og Box 201 fyrir unglinga hefst einnig samkvæmt stundaskrá. Eftir að Box 101 er lokið geta krakkarnir farið í 201 hópinn.
Hægt er að nýta frístundarstyrki í allt barna- og unglingastarf.
Sjá nánari upplýsingar um gjaldskrána.
Meðlimir Mjölnis sem vilja skrá sig á grunnnámskeið hafa samband við móttöku Mjölnis, skrá þeir sig og fá afslátt.
Nánari upplýsingar fást í móttöku Mjölnis eða gegnum mjolnir@mjolnir.is.
Auk þessa verða 4-5 daga námskeið í sumar fyrir börn 9-12 ára.