Flýtilyklar
Víkingaleikar Mjölnis á laugardaginn
Hinir árlegu Víkingaleikar Mjölnis fara fram laugardaginn 6. október. Á leikunum er keppt í hinum ýmsu Víkingaþreks æfingum og má búast við afar harðri keppni í ár.
Skömmu eftir að skráningu á leikana lauk var orðið fullt. Það verða því tæplega 50 keppendur af báðum kynum sem keppa á svakalegum Víkingaleikum í ár.
Leikarnir hefjast kl. 11 en aðgangseyrir er 1.000 kr og er öllum velkomið að mæta.