Flýtilyklar
ÚRSLIT Á HÓLMGÖNGUMÓTI
Um helgina fór fram Hómganga sem er innanfélagsmót í uppgjafarglímu. Keppt var í tveimur beltaflokkum, hvítu annarsvegar og bláu/fjólubláu hinsvegar. Margar góðar glímur sáust á mótinu en í flokki hvítbeltinga var það Bjarki Óskarsson sem sigraði Ívar Helga Grímsson og Guðmundur Hammer lenti í þriðja sæti.
Í flokki blábeltinga (-75 kg) sigraði Jeremy Aclipen, Hafþór Gunnlaugsson varð í öðru sæti og Ásgeir Marteinsson varð í því þriðja.
Í flokki blábeltinga (-90 kg) sigraði Mattías Elí Júlíusson, Kristján Helgi Hafliðason varð í öðru sæti og Þórir Gunnarsson varð í þriðja sæti.
Í flokki blábeltinga (+90 kg) sigraði Eggert Djaffer, Brynjar Örn Ellertsson varð í öðru sæti og Þórhallur Ragnarsson varð í þriðja sæti.