Flýtilyklar
ÞRÍR SIGRAR OG TVÖ TÖP Á GRÆNLANDI
Fimm keppendur frá HR/Mjölni kepptu á boxmóti í Grænlandi í gær. Þrír sigrar og tvö töp var niðurstaða kvöldsins.
Sex keppendur héldu til Grænlands á fimmtudaginn til að keppa á stórum boxviðburði í Nuuk. Því miður féll bardagi Elmars Freys Halldórssonar niður og fékk hann því ekki að keppa eins og til stóð.
Bardagarnir voru sýndir í beinni útsendingu í grænlenska ríkissjónvarpinu en um 1000 áhorfendur voru í salnum.
Lisa Billing var fyrst af keppendum HR/Mjölnis og vann sinn bardaga eftir dómaraákvörðun. Garpur Fletcher var svo næstur en hann gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn bardaga með tæknilegu rothöggi í 2. lotu. Venet Banushi vann svo sinn bardaga eftir dómaraákvörðun.
Heba María Ægisdóttir tapaði sínum bardaga eftir klofna dómaraákvörðun í hörku viðureign. Það var svo Sigurjón Rúnar Vikarsson sem var í síðasta bardaga kvöldsins en hann tapaði einnig eftir klofna dómaraákvörðun í flottum bardaga.
Flott frammistaða hjá keppnishópnum en öll voru þau að taka sína fyrstu boxbardaga nema Sigurjón Vikar.