Flýtilyklar
SIGURÐUR JÓHANN VALINN IÐKANDI ÁRSINS
Undanfarin ár hefur iðkandi ársins verið krýndur í kringum árshátíðina. Iðkandi ársins er sá sem hefur þótt sýna framúrskarandi dugnað á æfingum og mætt oftast yfir árið. Þar skaraði Sigurður svo sannarlega fram úr en auk þess hefur hann verið duglegur að hjálpa til í barnastarfinu, hefur bætt sig hratt í glímunni og er síðan ofan á allt ótrúlega jákvæður og almennilegur.
Sigurður er alltaf til í að hjálpa öllum og er því vel að þessu kominn!
Á árshátíðinni var Kári Jóhannesson kjörinn bardagamaður ársins 2018 og Gyða Erlingsdóttir starfsmaður ársins.