Flýtilyklar
Siðareglur Mjölnis
Siðareglur Mjölnis hafa nú litið dagsins ljós. Reglurnar eru sérsniðnar fyrir Mjölni og með hliðsjón af starfsemi félagsins.
Þessar reglur eru unnar af Ingunni S. Unnsteinsdóttur Kristensen aðstoðarframkvæmdastjóra Mjölnis sem jafnframt er með BS- og MS-gráðu í sálfræði.
Eftir að reglurnar höfðu verið unnar var lítill starfshópur skipaður til að yfirfara þær og vinna enn frekar. Hópurinn samanstóð af framkvæmdastjóra Mjölnis, sem er einnig menntaður grunn- og framhaldskólakennari, lögreglukonu, blaðamanni og lögfræðinema, sálfræðinema á mastersstigi og þjálfara í Mjölni, sem og tölvunarfræðingi og stjórnarmanni Mjölnis. Hafdís Inga aðstoðaði einnig á öllum stigum vinnslu reglnanna. Allir þeir sem komu með athugasemdir hafa komið að starfsemi Mjölnis á einhvern hátt og mikið verið í íþróttum gegnum árin. Mjölnir þakkar þeim öllum kærlega fyrir aðstoðina.
Siðareglurnar hafa verið kynntar fyrir starfsmönnum Mjölnis og voru samþykktar af stjórn félagsins í desember 2014.