Flýtilyklar
POTAÐ Í AUGU GUNNARS Í GLASGOW
Gunnar Nelson mætti Santiago Ponzinibbio í UFC Glasgow í Skotlandi á laugardagskvöldið. Gunnar virtist byrja bardagann vel og hitti Santiago. En strax eftir fyrsta höggið sá Gunnar strjúka út báðum augum sínum og virtist eiga í vandræðum með fjarlægðarskynið. Hann sótti samt að Santiago og hafði betur þar til Santiago náði inn krók og sótti að Gunnari í búrinu þar náði hann að slá Gunnar niður og dómarinn stöðvaði bardagann réttilega. Strax í búrinu eftir bardagann sagði Gunnar að Santiago hefði potað í augu sín og hann hefði séð tvöfalt. Hann endurtók þetta svo á blaðamannafundinum og um kvöldið birti síðan ljósmyndarinn Jerry McCarthy bindir sem sýndu augljóslega hvernig Santiago Ponzinibbio potar í bæði augu Gunnars. Eftir þetta hefur komið í ljós að Santiago virðist pota a.m.k. tvisvar í hvort auga Gunnars, bæði eftir 20 sek. og síðan aftur í lokin. Auk þess fer hann oftar með hendurnar að augum Gunnars. Verið er að skoða hvort úrslit bardagans verða kærð vegna þessa en það mun koma í ljós á næstu dögum.