MJÖLNIR OPEN UNGLINGA 2015 VERÐUR 6. SEPTEMBER

MJÖLNIR OPEN UNGLINGA 2015 VERÐUR 6. SEPTEMBER
Mjölnir Open unglinga

Mjölnir Open unglinga 2015 fer fram sunnudaginn 6. september næstkomandi í Mjölniskastalanum að Seljavegi 2 í Reykjavík. Keppt er í uppgjafarglímu (nogi) í aldursflokkum unglinga fæddra: 1998-1999, 2000-2001 og 2002-2003, sjá nánar hér að neðan. Mótið hefst stundvíslega kl. 11:00 en mæting fyrir keppendur er kl. 10:30. Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir@mjolnir.is og lýkur skráningu kl. 18 föstudaginn 4. september. Skráningargjald er kr. 1.500.

Vigtun er möguleg í afgreiðslu Mjölnis á föstudaginn 4. sept. frá kl. 12-18 og á opnunartíma á laugardaginn. Þjálfarar félaga geta sent inn vigtun keppenda sinna sem verður þá staðfest á keppnisdegi. Standist keppandi ekki innsenda vigtun er viðkomandi dæmdur úr leik. Tekið skal fram að ekki er gert ráð fyrir að unglingar séu að létta sig fyrir keppni enda fara þyngdaflokkar eftir skráningu á mótið.

2000-2001 og 2002-2003 (glímulengd 4 mínútur)

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

  • Svæfingarlásar eru leyfðir ("naktar" þ.e. án fatnaðar) en skal miða við að ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.
  • Beinir handarlásar eru leyfðir sem og axlarlásar. Ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

Óleyfileg brögð:

  • Úlnliðslásar eru óleyfilegir.
  • Allir fótalásar eru óleyfilegir, hvort sem um er að ræða beina eða snúandi.
  • Allir lásar sem fela í sér að snúa upp á háls/hrygg eða setja háls/hrygg í óþægilega stöðu eru óleyfilegir.
  • Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í aldurflokki 1998-1999 (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.


1998-1999 (glímulengd 5 mínútur)

Leyfileg brögð:

  • Öll svæfingartök ("naktar" þ.e. án fatnaðar).
  • Allir handarlásar, axlarlásar og úlnliðslásar.

Óleyfileg brögð:

  • Það má ekki kýla, sparka, bíta eða pota í líkamsop.
  • Það má ekki rífa í hár.
  • Það má ekki pota í sár eða vísvitandi valda skaða.
  • Það má ekki reyna að snúa háls í óþægilega stöðu.
  • Það má ekki framkvæma lás sem snýr upp á hryggjaliði.
  • Það má ekki framkvæma fótalása, hvorki beina né snúandi.
  • Það má ekki lyfta manni sem liggur á baki í loftið og skella honum í gólfið.
  • Ef gripið er í fingur þá skal grípa í að minnsta kosti þrjá fingur sem liggja saman í einu gripi.


Það má vera að ofangreindur listi sé ekki tæmandi og því skal spyrja út í vafamál með hvort eitthvað megi eður ei þegar farið verður yfir reglur á mótsdegi. Dómarar áskilja sér rétt til að banna ákveðin brögð þó þau hafi ekki verið tilgreind á ofangreindum lista. Það er ítrekað við keppendur að sýna ávallt íþróttamannslega hegðun og er reiknað með því að keppendur hafi vit og þekkingu til að framkvæma ekki aðgerðir sem líklegt er að valdi líkamlegum skaða. Ef að dómari telur að keppandi hafi brotið af sér með því að stofna vísvitandi til líkamsskaða á öðrum keppanda þá skal þeim keppanda umsvifalaust vísað úr keppni.
Stigagjöf er hefðbundin samkvæmt reglum IBJJF.

Mótsstjóri verður Sigrún Helga Lund formaður BJJ Sambands Íslands.

Iðkendur athugið að allir tímar falla niður í Mjölni þennan sunnudag vegna mótsins. Mætum og styðjum okkar fólk og sjáum efnilegasta glímufólk landsins takast á.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði