MJÖLNIR OPEN 11 - SKRÁNING HAFIN

MJÖLNIR OPEN 11 - SKRÁNING HAFIN
Mjölnir Open 11

Mjölnir Open 11 verður haldið í Mjölniskastalanum, Seljavegi 2, laugardaginn 23. apríl og er skráning hafin.

Mjölnir Open hefur lengi verið stærsta NoGi uppgjafarglímumót sem haldið er á Íslandi en þetta er í 11. skiptið sem mótið er haldið. Keppt verður í þyngdarflokkum kvenna og karla og í opnum flokkum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir uppgjafartak mótsins.

Skráðu þig hér !

Skráningu lýkur miðvikudaginn 20. apríl kl. 21:00. Skráningargjald er kr. 4.000 og fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku.

  • Vigtun verður í Mjölni föstudaginn 22. apríl milli kl. 17:00 - 19:00
  • Mótið hefst kl. 11:00
  • Reglufundur kl. 10:30
  • Húsið opnar kl. 10:00

Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er kr. 500.

Keppt verður í fimm þyngarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka.

Karlar:
-66 kg
-77 kg
-88 kg
-99 kg
+99 kg

Konur:
-60 kg
-70 kg
+70 kg

Keppnisreglur á Mjölnir Open


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði