Flýtilyklar
Mjölnir með rúm tuttugu verðlaun á Mjölnir Open 10
Það var mikið um dýrðir í Mjölniskastalanum í dag þegar glímumótið Mjölnir Open var haldið í tíunda sinn. Mótið er óopinbert Íslandsmót í uppgjafarglímu án galla. Hátt í áttatíu keppendur, frá sex félögum tóku þátt og keppt var í fimm þyngdarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka.
Mjölnir vill þakka öllum þeim sem gerðu Mjölnir Open í gær að því frábæra móti sem það var, keppendum, starfsfólki og áhorfendum. Einnig þökkum við öllum þeim félögum sem sendu keppendur á mótið. Sérstakar þakkir fær Sigrún Helga Lund sem stýrði mótinu af mikilli röggsemi en þetta var 10. árið í röð sem við höldum Mjölnir Open. Keppendur í gær voru um 80 talsins og áhorfendur um 200 þegar mest var. Það er magnað sjá framfarirnar í glímunni og sívaxandi áhuga þennan áratug sem mótið hefur verið í haldið.
Þráinn Kolbeinsson og Anna Soffía Víkingsdóttir voru óumdeilanlegir sigurvegarar mótsins, en þau unnu bæði sína þyngdarflokka sem og opna flokka karla og kvenna. Mjölnir vann til rúmlegra tuttugu verðlauna á mótinu þar af til sex gullverðlauna en öll úrslitin má sjá hér að neðan.
Myndir frá mótinu eru á Facebooksíðu Mjölnis.
Úrslit voru eftirfarandi:
Opinn flokkur kvenna
1. sæti Anna Soffía Víkingsdóttir, Fenri
2. sæti Drífa Rós Bjarnadóttir, VBC Checkmat
3. sæti Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Mjölni
Opinn flokkur karla
1. sæti Þráinn Kolbeinsson, Mjölni
2. sæti Halldór Logi Valsson, Fenri
3. sæti Bjarki Þór Pálsson, Mjölni
-60 kg flokkur kvenna
1. sæti Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Mjölni
2. sæti Ólöf Embla Kristinsdóttir, VBC Checkmat
3. sæti Auður Olga Skúladóttir, Mjölni
-70 kg flokkur kvenna
1. sæti Drífa Rós Bjarnadóttir, VBC Checkmat
2. sæti Dóra Haraldsdóttir, Mjölni
3. sæti Ragna Hjartardóttir, Mjölni
+70 kg flokkur kvenna
1. sæti Anna Soffía Víkingsdóttir, Fenri,
2. sæti Sigrún Edda Halldórsdóttir, Mjölni
3. sæti Rut Rúnarsdóttir, Mjölni
-66 kg flokkur karla
1. sæti Axel Kristinsson, Mjölni
2. sæti Qays Stetkevych, Mjölni
3. sæti Bjartur Dagur Gunnarsson, Mjölni
-77 kg flokkur karla
1. sæti Pétur Jónasson, Mjölni
2. sæti Ómar Yamak, Mjölni
3. sæti Marinó Kristjánsson, Mjölni
-88 kg flokkur karla
1. sæti Eiður Sigurðsson, Mjölni
2. sæti Bjarki Þór Pálsson, Mjölni
3. sæti Diego Björn Valencia, Mjölni
-99 kg flokkur karla
1. sæti Þráinn Kolbeinsson, Mjölni
2. sæti Thomas Hammer, Mjölni
3. sæti Þór Davíðsson, Ými
+99 kg flokkur karla
1. sæti Halldór Logi Valsson, Fenri
2. sæti Guðmundur Stefán Gunnarsson, Sleipni
3. sæti Brynjar Örn Ellertsson, Mjölni