MJÖLNIR BÝÐUR GRINDVÍKINGUM AÐ ÆFA ENDURGJALDSLAUST
11. nóvember, 2023
Mjölnir býður öllum Grindvíkingum, sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín, að mæta endurgjaldslaust á æfingar í Mjölni meðan neyðarástand stendur yfir.
Hugur okkar er hjá Grindvíkingum á þessum óvissutímum.