Flýtilyklar
KRISTÍN SIF MEÐ SILFUR Á NORÐURLANDAMÓTI
Kristín Sif Björgvinsdóttir nældi sér í silfur á Norðurlandamótinu í boxi um helgina. Þetta er annað árið í röð sem Kristín næli sér í silfur á mótinu.
Mótið fór fram í Finnlandi en Kristín hélt þangað ásamt Steinari Thors, öðrum yfirþjálfara Mjölnis/HR í boxinu.
Kristín Sif byrjaði á að sigra Lille Ahlstedt frá Finnlandi á laugardeginum og komst því í úrslit. Á sunnudeginum mætti hún svo Love Holgersson en mátti sætta sig við tap eftir dómaraákvörðun. Kristín tapaði einnig fyrir Love í fyrra en bardaginn var mun jafnari í ár og er Kristín því greinilega að bæta sig.
Kristín fékk því silfur á mótinu annað árið í röð en tveir aðrir Íslendingar, þeir Jafet Örn Þorsteinsson og Emin Kadri, kepptu á mótinu og fengu þeir einnig silfur.