Flýtilyklar
KICKBOX 101 GRUNNNÁMSKEIÐ HEFST 5. SEPTEMBER
Skráning er í fullum gangi á Kickbox 101 grunnnámskeið sem hefst þriðjudaginn 5. september. Um er að ræða fjögurra vikna námskeið en kennt er tvö kvöld í viku, 90 mínútur í senn.
Á námskeiðinu er farið yfir öll helstu spörk og högg, varnartilbrigði og fótaburð ásamt því að læra vel á það hvernig unnið er með tæ-púða og skyldi. Námskeiðið er þrepaskipt þar sem hvert kennsluatriði leiðir að öðru og fá iðkendur að æfa sig vel á tækninni sem kennd er bæði í pörum og með einstaklingsæfingum. Þegar líða tekur á námskeiðið flétta iðkendur tækninni sem þeir hafa lært inn í létt sparr þar sem blandað er saman varnartaktík og sókn á móti andstæðing. Mikið er lagt uppúr öryggi iðkenda en strax í upphafi námskeiðsins fá iðkendur kynningu á öryggisatriðum og staðalbúnaði sem fylgja íþróttinni. Skráning fer frem með því að smella á tengilinn hér að neðan.
- Kickbox 101 hefst þriðjudaginn 5. sept kl. 19:00
-
- K101 er 4 vikur, 90 min. hver tími á þriðjudögum og fimmtudögum - Skráðu þig hér
-