Keppnislið Mjölnis til Skotlands

Þann 2. maí nk. mun keppnislið Mjölnis halda til Skotlands og berjast í Headhunters Fighting Championship (HFC) sem fram fer í bænum Falkirk sem liggur á milli Edinborgar og Glasgow. Þar munu þau Sunna Rannveig Davíðsdóttir, Bjarki Ómarsson, Hrólfur Ólafsson og vonandi Birgir Örn Tómasson stíga í búrið og sýna hvað í þeim býr. Fyrsti bardagi kvöldsins er klukkan 17:30 að íslenskum tíma en nánari tímasetning á okkar fólki kemur í ljós síðar og verður auglýst á Facebook síðu Mjölnis.

Sunnar Rannveig (1-1) mætir Helen Copus (2-0-1) en Sunnar hefur átt mjög erfitt með að fá andstæðinga undanfarið og á síðasta ári drógu t.d. 5 tilvonandi andstæðingar hennar sig út úr keppni við hana. Þessi bardagi fer fram í 61,2kg flokki (135 pund) sem er í raun 1-2 þyngdarflokkum ofar þeim sem Sunna myndi vanalega berjast í. Sjá Leiðin að búrinu: Sunna Rannveig Davíðsdóttir vs. Helen Copus á vef MMA Frétta.

Bjarki Ómarssom (3-2) mun berjast um HFC fjaðurvigtarbeltið (-66kg) en andstæðingur hans verður Callum Murrie (5-1). Murrie er mjög öflugur andstæðingur sem aðeins hefur tapa einu sinni, en það var hans fyrsti MMA bardagi árið 2010. Síðan þá hefur hann unnið 5 bardaga í röð og er því að mikilli siglingu. Bjarki er hins vegar vanur sterkum andstæðingum og sigraði einn slíkan í Liverpool í mars. Hér verður því ekkert gefið eftir enda HFC beltið í húfi. Sjá Leiðin að búrinu: Bjarki Ómarsson vs. Calum Murrie á vef MMA Frétta.

Hrólfur (1-0) er að keppa sinn annan bardaga síðan 2012 og mætir Pólverjanum, Patryk Witt, sem er að stíga sín fyrstu skref í MMA en hefur verið að standa sig vel á glímumótum. Bardaginn verður í 80kg hentivigt að ósk pólska keppandans en Hrólfur mun að öllu óbreyttu keppa í veltivigt (-77kg) í framtíðinni. Sjá Leiðin að búrinu: Hrólfur Ólafsson vs. Patryk Witt á vef MMA Frétta.

Birgir Örn kemur (3-1) átti að mæta andstæðingi í léttvigtarbardaga (-70kg) en sá var að draga sig úr keppni og því miður tókst ekki að finna annan andstæðing fyrir Birgi Örn með svo stuttum fyrirvara en Biggi mun koma þeim mun hungraðri í næsta bardaga.

Við munum gera ferðinni góð skil á Facebook og ekki missa af okkur á Snapchat (mjolnirmma).


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði