Keppnisliðið keppir í Shinobi War 7.mars nk.

Nú hefur það verið staðfest að þrír Íslendingar munu keppa á MMA Shinobi War 4 keppninni í Olympia-höllinni Liverpool laugardaginn 7. mars. Þeir sem keppa þetta kvöld eru Magnús "Loki" Ingvarsson en bróðir hans, Bjarki Þór, tók einmitt heim titill á Shinobi 3 í fyrra.  Magnús átti gott ár í fyrra en þá kláraði hann hvern bardagann á eftir öðrum með rothöggi. Svo er það Birgir "Biggi" Örn Tómasson en hann keppti einnig á Shinobi í fyrra og er þekktur fyrir röthöggin sín. Að lokum er það Bjarki "The Kid" Ómarsson en hann er yngstur í MMA keppnislið Mjölnis og þykir rosalega efnilegur. Aðalbardagi kvöldisns er Gavin Hughes (5-0) á móti Birgi Tómassyni (2-0). En Hughes er einmitt frá Liverool.

Gaman ferðir hafa auglýst ferð á bardagann en sérstakur fararstjóri frá Mjölni verður Bjarki Þór Pálsson, meðlimur í MMA Keppnisliði Mjölnis.

Endilega skelltu þér með, þetta verður klikkað!

Skráning hér hjá Gaman.is


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði