Flýtilyklar
JORGE 'SPANIARD' BLANCO MEÐ NÁMSKEIÐ Í MJÖLNI
Þjálfarinn Jorge 'Spaniard' Blanco var með striking workshop í dag. Námskeiðið var fyrir lengra komna og vel sótt.
Jorge Blanco er margreyndur þjálfari og er með um hundrað bardaga samanlagt í boxi og kickboxi, Spánarmeistari í kickboxi og var meðlimur í spænska landsliðinu í boxi. Jorge hefur þjálfað menn á borð við Georges St. Pierre, Rashad Evans, Michael Bisping og fleiri en hann hefur nýlega byrjað að vinna með Gunnari.
Námskeiðið var vel sótt af okkar bardagafólki og gátu allir komið út með eitthvað nýtt.