Flýtilyklar
JÓL OG ÁRAMÓT - OPNUNARTÍMI
Athugið breyttan opnunartíma og breytingu á æfingatímum yfir jól og áramót. Að venju lýkur barna- og unglingastarfi fyrir jól. Breyttir opnunar- og æfingatímar eru á eftirfarandi dögum og þessa daga eru aðeins þær æfingar sem koma fram hér.
Barna- og unglingastarfið þessa önnina klárast föstudaginn 13. desember og ný önn hefst síðan miðvikudaginn 8. janúar 2025. Ungmenni 13 ára og eldri eru þó velkomin á fullorðinsæfingar á milli jóla og nýárs. Breyttur opnunartími yfir hátíðarnar verður sem hér segir:
- Þriðjudagurinn 24. des. aðfangadagur: Húsið opnar kl. 10:15 og lokar kl. 13:00. BJJ Open mat frá opnun til 12:30 og Víkingaþrek kl. 10:15 og 11:15. Jólastemning. Aðrir tímar falla niður.
- Miðvikudagur 25. des. jóladagur: LOKAÐ
- Fimmtudagurinn 26. des. annar í jólum: Húsið opnar kl. 10:15 og lokar kl. 14:00. Open Mat frá opnun til kl. 13 og Víkingaþrek kl. 11 og 12. Aðrir tímar falla niður.
- Þriðjudagurinn 31. des. gamlársdagur: Húsið opnar kl.10:15 og lokar kl.13:30. Risaæfing í Víkingaþreki kl. 10:30 og risaæfing í BJJ kl. 10:30. Aðrir tímar falla niður.
- Miðvikudagur 1. jan. nýársdagur: LOKAÐ
Aðra daga er opnunartími samkvæmt stundaskrá.