Flýtilyklar
GRETTISMÓT MJÖLNIS 7. NÓVEMBER
Grettismót Mjölnis fer fram laugardaginn 7. nóvember nk. í Mjölniskastalanum en þetta er í þriðja sinn sem mótið er haldið. Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir@mjolnir.is en skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 5. nóvember. Skráningargjald eru kr. 4.000.
Keppt er í galla (Gi) í fimm þyngdarflokkum karla og tveimur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka beggja kynja. Vigtað er í galla daginn fyrir mótið. Keppt er eftir reglum og stigagjöf IBJJF (eins og á Íslandsmeistaramótinu) en þyngdarflokkana má sjá hér að neðan:
Þyngdarflokkar karla: -68kg, -79kg, -90kg, -101kg, +101kg
Þyngdarflokkar kvenna: -64kg, +64kg
Mótsstjóri er Sigrún Helga Lund.
ATH AÐ ALLIR TÍMAR FALLA NIÐUR ÞENNAN DAG VEGNA GRETTISMÓTSINS