Flýtilyklar
GOÐAAFL 101 Í FEBRÚAR
Grunnnámskeið í Goðaafli hefst 4. febrúar nk. og verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:15 en um er að ræða fjögurra vikna námskeið. Goðaafl 101 er haldið óreglulega og því tilvalið að skella sér núna þegar það er haldið.
Goðaafl eru tímar sem stuðla að styrk í kringum grunnstoðir líkamans. Unnið er með styrk í snúningsvöðvum miðjusvæðis sem halda við neðra bak, vöðva í efra baki og axlasvæði, mjaðmasvæði og minni vöðvum í kringum hné/ökkla.
Í Goðaafli 101 verður unnið með eigin líkamsþyngd, létt lóð, bolta og teygjur. Kennd verður grunnlíkamsbreyting og unnið að því að auka hreyfanleika og líkamsvitund. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir þá sem aldrei hafa stundað þjálfun, eru að koma sér af stað eftir meiðsli eða eru að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt. Námskeiðið er einnig kjörið fyrir þá sem vilja dýpka þekkingu á grunntækni og líkamsbeitingu.
Á námskeiðinu er mikil áhersla lögð á rétta líkamsbeitingu og farið í gegnum æfinguna á stýrðum hraða eftir líkamlegri getu. Í hverri æfingu sýnir þjálfarinn fleiri en eina útgáfu svo auðvelt er að skala erfiðleika stigið upp eða niður eftir því hvað hentar. Ef viðkomandi er með langvarandi meiðsli og getur ekki framkvæmt ákveðnar æfingar er alltaf hægt að finna aðrar æfingar í staðinn sem henta.
Námskeiðið er fyrir fólk á öllum aldri.
Búnaður: íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol, engir skór)
Þjálfarar á þessu námskeiði verða þeir Ásgeir Marteinsson og Jóhann Páll Jónsson.