Flýtilyklar
FRÍR PRUFUTÍMI Í MJÖLNISYOGA 20.JÚNÍ
Til að fagna alþjóðlegum yoga (international yoga day) degi laugardaginn 20. júní ætlum við að bjóða uppá frían prufutíma í Mjölnisyoga kl. 13.10.
Í Mjölni er boðið uppá Mjölnisyoga sem er sérhannað yoga fyrir bardagafólk. Yoga sem gengur sérstaklega útá að styrkja og þjálfa athygli, þjálfa öndunina til að verða dýpri og læra að nýta þá tækni á hreyfingu, æfum rétta líkamsbeytingu og vinna með að fá sterkari miðju (core og bak), djúpar teygjur og opnanir sem fyrirbyggja meiðsl og svo miklu, miklu meira.
Tíminn á laugardaginn er fyrir alla, byrjendur og lengra komna. Kjörið tækifæri til að prófa yoga í fyrsta skipti eða fá nýja sýn á yoga.