FRÁBÆRT GENGI Á SHINOBI 8

Síðustu helgi börðust þrír Mjölnismenn á Shinobi War 8 sem haldið var í Liverpool. Þetta voru þeir Bjarki Þór Pálsson, Egill Örn Hjördísarson og Bjarki Ómarsson.  Þeir héldu til Liverpool á miðvikudaginn ásamt þjálfurum sínum Jóni Viðari Arnþórssyni og Árna Ísakssyni. 

Bjarki Þór Pálsson barðist fyrstur en Bjarki Þór var að berjast í sínum fyrsta atvinnumanna bardaga. Bjarki fékk nýjan andsæðing 30 mínútur fyrir bardaga en það virtist ekki hafa nein áhrif á Bjarka þar sem hann kláraði bardagann eftir aðeins 23 sekúndur með hengingu. 

Egill Örn Hjördísarson átti annan bardaga kvöldsins en eftir harða og jafna baráttu sigraði Egill á dómaraákvörðun. 

Bjarki Ómarsson var síðastur í búrið þetta kvöld en Bjarki barðist um fjaðurvigtarbelti Shinobi. Eftir 5 lotur, þar sem Bjarki hafði fulla stjórn allan tíman, vann Bjarki öruggan sigur á dómaraákvörðun. 

 

Strákarnir stóðu sig frábærlega vel og óskum við þeim innilega til hamingju!

 

 


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði