BREYTING LÆGSTU MÁNAÐARGJALDA Í MJÖLNI

BREYTING LÆGSTU MÁNAÐARGJALDA Í MJÖLNI
Mjölnir

Stjórn Mjölnis hefur ákveðið að hækka föst mánaðargjöld þeirra sem lægstu gjöldin greiða í Mjölni þannig að lágmarks mánaðargreiðsla miðist við kr. 10.500. Þetta á þó ekki við í einstökum tilfellum þar sem um er að ræða sérkjör hjá félaginu.

Krónutala lægstu gjalda hefur haldist óbreytt í tæpan áratug á meðan verðlag og vísitala hefur hækkað verulega, ásamt því að Mjölnir býður nú uppá mun meiri og fjölbreyttari þjónustu, kennslu, búnað og aðstöðu. Mjölnir hefur ávallt litið á þetta sem aðferð til að veita dyggustu og trúustu iðkendum okkar sanngjarnan afslátt og umbun fyrir hollustuna og það verður gert áfram. Bilið á milli hæstu og lægstu gjalda verður þó sennilega prósentubundið en nýjar hugmyndir um slíkt eru í vinnslu og verða kynntar síðar á árinu.

Nýja gjaldið tekur gildi um næstu mánaðarmót, þ.e. um næstu mánaðarmót verður greitt samkvæmt því. Þessi hækkun hefur engin áhrif á þá sem þegar eru að greiða kr. 10.500 eða meira í mánaðargreiðslur.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði