BJJ NÁMSKEIÐ MEÐ ARNARI FREY

BJJ NÁMSKEIÐ MEÐ ARNARI FREY
Arnar Freyr

Sunnudaginn 11. september verður haldið BJJ námskeið (Gi og Nogi) í Mjölni með Arnari Frey Vigfússyni frá kl. 10:30-13:00. Verð á námskeiðið er kr. 3.900 og skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis.

Arnar er mörgum kunnugur enda einn af stofnendum Mjölnis og fyrrum þjálfari hjá félaginu. Einnig er hann einn af fyrstu íslensku svartbeltingunum í BJJ. Hann býr yfir meira en áratuga reynslu og hefur þjálfað víða við góðan orðstír. Þá hefur hann keppt bæði hér og erlendis með góðum árangri. Arnar Freyr er búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann er yfirþjálfari BJJ hjá Rumble Sports. 

Athugið að Open Mat fellur niður þennan dag vegna námskeiðsins.


MjölnirMjölnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavík
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

OPNUNARTÍMAR

Mánudagar og miðvikudagar: 06:15 - 22:00

Þriðjudagar og fimmtudagar: 07:00 - 22:00

Föstudagar: 06:15 - 20:00

Laugardagar: 08:45 - 15:00

Sunnudagar: 10:00 - 15:00

Æfingasalir loka samkvæmt stundatöflu þegar síðasta tíma lýkur en lyftingasalir eru opnir mán.-fim. til 22:00 og fös. til 20:00.

Sauna, heiti- og kaldi pottur loka 15 mínútum á undan skipulagðri lokun.

Skráning á póstlista

Svæði