Flýtilyklar
BERSERKIR MJÖLNIS MAGNAÐIR Á ÞREKMÓTARÖÐINNI
Haustmót Þrekmótaraðarinnar fór fram í gær þar sem Mjölnir var með 25 keppendur. Aldrei áður hefur Mjölnir sent frá sér svona stóran keppendafjölda á þrekmót og má segja að Berserkirnir, keppnislið Víkingaþreksins, séu heldur betur farnir láta taka eftir sér! Flestir voru að keppa í para- og liðakeppni en liðið Mjölnir Kidz endaði á að vinna liðakeppni karla. Liðið var skipað þeim Böðvari Tandra, Halldóri, Benedikt og Benjamín.
Myndir frá keppninni má finna á Facebooksíðu Mjölnis.