Flýtilyklar
AÐALFUNDUR MJÖLNIS ÍÞRÓTTAFÉLAGS
Aðalfundur íþróttafélagsins Mjölnis verður haldinn mánudaginn 24. september kl. 16:30 í húsnæði Mjölnis að Flugvallarvegi 3-3a. Aðeins félagar sem hafa verið meðlimir samfleytt að lágmarki 12 mánuði fyrir aðalfund og hafa náð 20 ára aldri hafa atkvæðarétt á aðalfundi.
Kjörgengnir til stjórnarembætta eru almennir félagsmenn sem hafa verið meðlimir samfleytt að lágmarki 24 mánuði fyrir aðalfund. Kjörgengnir til embættis formanns stjórnar eru þó aðeins félagsmenn sem hafa verið meðlimir samfleytt að lágmarki 36 mánuði fyrir aðalfund og hafa náð 25 ára aldri. Framboð til stjórnarsetu og tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn ekki síðar en viku fyrir aðalfund og sendist á netfangið mjolnir@mjolnir.is. Að öðru leyti vísast til laga Mjölnis.
Dagskráin er eftirfarandi:
1. Lagðar fram tillögur að breytingum laga og reglugerða félagsins ef einhverjar eru.
2. Önnur mál.
3. Kosning stjórnar og endurskoðanda.