Flýtilyklar
BOLAMÓTIÐ
Í febrúar á þessu ári settum við upp vel heppnað Bolamót þar sem 9 spennandi ofurglímur fóru fram. Í aðalglímu kvöldsins sigraði Sighvatur Helgason UFC bardagamanninn Tom Breese með hengingu og fengu áhorfendur að sjá mögnuð tilþrif hjá færasta glímufólki landsins.
Nú á að endurtaka leikinn og munum við setja upp annað svona mót þann 22. september. 9 ofurglímur munu eiga sér stað og munu þrír erlendir glímumenn mæta til að keppa á mótinu. Takið kvöldið endilega frá því þetta verður glímuveisla sem enginn má missa af!