Flýtilyklar
Valshamur 101
Valshamur 101 er sex vikna grunnnámskeið í hreyfiflæði. Á námskeiðinu læra iðkendur að virkja og efla líkamsvitund og samhæfingu þar sem þeir vinna með eigin líkamsþyngd á einstakan máta. Valshamur reynir á jafnvægi, liðleika, úthald og styrk svo eitthvað sé nefnt. Þetta einstaka námskeið fær þig til að hugsa öðruvísi um líkamann og hreyfingu almennt þar sem það færir líkamsvitund þína , liðleika og styrk upp á næsta stig. Námskeiðið er hugsað fyrir byrjendur þar sem hver og einn vinnur sig áfram eftir eigin getu.
Innifalið í grunnnámskeiði: Innifalið í verði 101 námskeiða er ein vika í Mjölni eftir að grunnnámskeiði lýkur. Innifalið er einnig aðgangur að heitum potti, köldum potti og lyftingaraðstöðu. Sána er í vinnslu.
Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Valshamur
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol, engir skór)
Þjálfari: Dagmar Hrund
Þú getur skráð þig strax í meðlimaáskrift en þá færðu eitt grunnnámskeið (101) frítt með 6 mánaða eða lengri binditímaáskrift. Meðlimir í fastri meðlimaáskrift (6 mánaða binditími eða lengur) fá 50% afslátt af 101 grunnnámskeiðum og aðgang að öllum opnum tímum.