Shortcuts
BJJ 301
BJJ 301 eru einskonar meistaraflokkstímar í glímu og hugsaðir fyrir þá sem eru búnir að glíma hátt í ár eða lengur. Miðað er við fjórar strípur á hvíta beltið sitt eða lengra. Samkvæmt stundaskrá eru tveir síðdegistímar á viku. Iðkendur mæta í galla (Gi) í tímana. Í stundaskrá má einnig finna Open Mat tíma sem eru opnir drilltímar fyrir iðkendur sem vilja koma og glíma. Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Brazilian Jiu Jitsu
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- galli (Gi) og belti
Þjálfarar: Axel Kristinsson, Ómar Yamak og Halldór Logi Valsson.