Shortcuts
Nogi 201
Nogi 201 eru framhaldstímar í glímu og opnast iðkendum eftir að þeir hafa lokið Mjölni 101 námskeiðinu og eru einnig opnir þeim sem eru með sambærilega reynslu. Í nogi tímum skulu iðkendur aðeins vera í venjulegum æfingafötum s.s. stuttbuxum og bol. Í stundaskrá má einnig finna Open Mat tíma sem eru opnir drilltímar fyrir iðkendur sem vilja koma og glíma. Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Brazilian Jiu Jitsu
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol)
Þjálfarar: Þráinn Kolbeinsson, Bjarni Baldursson og Halldór Logi Valsson.