Shortcuts
Kickbox 201
Kickbox 201 eru framhaldstímar í kickboxi þar sem kafað er dýpra í tækniatriði íþróttarinnar. Krafist er þess að iðkendur hafi klárað grunnnámskeiðið þar sem tæknin er flóknari og byggir á grunnatriðum. Í þessu námskeiði er grunnatriðum blandað við flóknari tækniaðferðir þar sem iðkendur eru hvattir til að blanda að eigin frumkvæði saman hinum ýmsu tækniatriðum við þróun á egin stíl. Námskeiðinu er skipt niður í 8 vikur þar sem hver vika hefur sitt þema. Að þeim 8 vikum liðnum er aftur tekið upp þema fyrstu viku með breyttum áherslum. Námskeiðið er þar af leiðandi 8 þrepa hringur sem endurtekur sig á 8 vikna fresti sem iðkendur geta nýtt sér til að ná góðu valdi á íþróttinni. Námskeiðið getur bæði nýst fólki sem einungis vill bæta kickbox tækni sína og fá þá hreyfingu sem úr íþróttinni fæst annars vegar eða nýtt sér námskeiðið sem stökkpall yfir í keppnishóp hinsvegar. Það er síðan á valdi þjálfara að ákveða hvort færni sé nægileg til að viðkomandi geti æft með keppnishópi (Kickbox 301) þar sem auknar kröfur eru gerðar og lögð er áhersla á að keppa. Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.
Við erum hér á Facebook: Mjölnir-Box & Kickbox
Markmið: Að iðkendur öðlist öryggi við iðkun kickboxs og geti nýtt sér lærða tækni til að þróa færni sína enn frekar.
Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:
- tannhlífar
- vafningar
- boxhanskar (mælt með, annars eru lánshanskar í boði)
- legghlífar (mælt með)
- íþróttaföt (mælt með stuttbuxum og stuttermabol eða hlýrabol)
Þjálfarar: Julius Bernsdorf, Aron Franz, Sunna Rannveig, Hrólfur Ólafsson o.fl.