Börn 5-6 ára

Börn 5-6 ára eru tímar sem eru að mestu byggðir upp sem leikir þar sem börnin læra meðvitað og ómeðvitað að glíma og verja sig. Í þessum tímum læra þau öruggar yfirburðastöður til að stýra andstæðingnum og halda honum niðri án þess að meiða hann. Þá læra þau einnig grunnhreyfingar við högg og spörk án þess að nota þau á hvert annað. Þau læra skemmtilega og heilbrigða íþrótt sem eykur sjálfstraust, líkamsstyrk, liðleika, snerpu og líkamsvitund.

Námskeiðinu er skipt upp í annir (vor, sumar, vetur). Hverjum tíma er getuskipt þannig að byrjendur eru fyrstu vikurnar einungis að læra að beita sér rétt og styrkja sig án þess að fara í leiki sem fela í sér snertingu (e. full contact) nema þau treysti sér til. Þannig eru börnin vel undirbúin til þess að takast á þegar að því kemur. Þannig er hægt að mæta og taka þátt hvenær sem er yfir árið. Mjög ítarlegt beltakerfi er hjá börnunum þar sem þau fá strípur og ný belti með því að taka þátt, sýna góða heðgun og tæknilegar framfarir.

Mikilvægt er að allir iðkendur fari eftir og virði reglur félagsins sem eru aðgengilegar hér á vefnum.

Tímasetningar má finna í stundatöflunni.

Búnaður: Sá staðalbúnaður sem iðkendur þurfa að hafa með sér í tíma og seldir eru stakir og/eða í sérstökum byrjendapökkum í Óðinsbúð er eftirfarandi:

  • galli (Gi) og belti

Á Facebook er sérstök foreldragrúppa fyrir þá sem eiga börn sem æfa í Mjölni.

Þjálfarar: Kristján Helgi Hafliðason, Stefán Fannar, Logi Geirsson, Áslaug Thorlacius, Mikeal Aclipen, Ketill Axelsson o.fl.

Ný önn í barna- og unglingastarfi Mjölnis hefst 2. og 3. september samkvæmt stundatöflu.

Skráning á námskeið

Mjölnir

Mjolnir MMA

Flugvallarvegur 3-3a
102 Reykjavik
Iceland

+354 534 4455
mjolnir@mjolnir.is

 

OPENING HOURS

Mondays and Wednesdays: 06:15 - 22:00
Tuesdays and Thursdays: 07:00 - 22:00
Fridays: 06:15 - 20:00
Saturdays: 08:45 - 14:00
Sundays: 10:15 - 15:00

Training halls close according to the Timetable when the last class ends, but weight lifting halls are open Mon.-Thu. until 22:00 and Fri. until 20:00.

Sauna, hot tub and cold tub close 15 minutes before gym closing.

Subscribe to mailinglist

Division