Yoga

Yoga í Mjölni
Í yoga tímunum í Mjölni leggjum við áherslu á djúpar og langar teygjur, öndun og góða slökun. Þeir eru frábært mótvægi við krefjandi æfingar vikunnar og tækifæri til að hægja aðeins á, auka liðleika og hlusta á líkamann. Við gefum okkur tíma til að slaka á, losa um spennu og hlaða batteríin.
Tímarnir henta öllum iðkendum Mjölnis, óháð reynslu af yoga, og eru frábærir til að fyrirbyggja meiðsli, auka líkamsvitund og endurheimt.






















