Dóttir - Þrek

Dóttir - Þrek í Mjölni
Dóttir eru nýir þrek tímar í Mjölni. Aðal áhersla æfinganna verður á glutes, kvið og brennslu. Tímarnir eru einungis fyrir konur. Notaðar eru stangir, lóð, teygjur og boxpúðar.
Iðkendur þurfa ekki að hafa lokið grunnnámskeiði til að geta mætt og ekkert aukagjald er fyrir þessar æfingar hjá greiðandi meðlimum Mjölnis.
Hér má sjá þær áskriftarleiðir sem eru í boði!
Boðið er upp á fjóra tíma í viku. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17:30 og laugardaga kl. 11:00. Takmarkaður fjöldi er í hvern tíma og því mikilvægt að skrá sig í hvern tíma inn á Abler.
Búnaður fyrir æfingar: Vafningar og íþróttaföt.
Þjálfarar eru: Imma Helga Arnþórsdóttir, Úlfhildur Unnarsdóttir, Hildur Guðný Káradóttir og Gillý Gunnarsdóttir.
Komdu og prófaðu fyrsta tímann frítt!
























