Víkinaþrek 101 grunnnámskeið hefst 4. september
14. ágúst 2017
Skráning er í fullum gangi á Víkingaþrek 101 grunnnámskeið sem hefst mánudaginn 4. september. Um er að ræða 6 vikna námskeið en kennt er tvö kvöld í viku.
Á námskeiðinu er farið yfir undirstöðuatriði í æfingakerfi Víkingaþreksins og markvisst unnið að því að byggja upp aukið úthald og efla líkamsstyrk. Æfingakerfið samanstendur af ýmsum líkamsþyngdaræfingum, ketilbjölluæfingum og bardagaþreksæfingum svo eitthvað sé nefnt. Að loknu grunnnámskeiði fá iðkendur heila viku frítt inn á venjulegar víkingaþreksæfingar til að prófa en að þeirri viku liðinni greiða þeir sem vilja halda áfram æfingagjöld samkvæmt verðskrá. Skráning fer frem með því að smella á tengilinn hér að neðan.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










