HÁSKÓLATÍMARNIR SNÚA AFTUR!
27. ágúst 2026
Mjölnir ætlar að bjóða uppá nýja tíma í haust sem eru fullkomnir fyrir háskólafólk í nærumhverf við Mjölni klukkan 15:00 á Mánudögum, Miðvikudögum og Föstudögum!
Æfingarnar byggja á hinu geysivinsæla Víkingaþreki Mjölnis þar sem unnið er með eigin líkamsþyngd, ketilbjöllur og fjölbreyttar þrekæfingar. Tímarnir eru hannaðir þannig að hver og einn getur skalað æfingarnar að sínum þörfum og getu.
Upplýsingar um tímann
Hvenær: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga klukkan 15:00.
Lengd: 60 mínútur.
Tegund æfinga: Víkingaþrek – fjölbreytt og krefjandi æfingarkerfi sem reynir á úthald, styrk og hugarfar.
Hverjum er þetta ætlað: Háskólafólki og öllum þeim sem hentar að æfa klukkan þrjú.
Verð: Frítt að prófa! - Síðan opið öllum með meðlimaáskrift!
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->









