Sumarnámskeið mjölnis fyrir 9-12 ára
18. maí 2024
Í suma verðum við, auk hefðbundins barnastarfs, með skemmtileg vikulöng sumarnámskeið í Mjölni fyrir börn á aldrinum 9-12 ára. Á námskeiðunum verður farið yfir grunntækni í sjálfsvörn, glímu, styrktarþjálfun og þreki. Áhersla er lögð á að krakkarnir njóti sín sem best í faglegu umhverfi undir handleiðslu reyndra þjálfara á heimsmælikvarða. Þá gæti verið farið í útileiki og fleira gaman, eftir veðri og vindum. Börnin skulu taka með sér íþróttaföt, útiföt eftir veðri og nesti.
Kennarar á námskeiðunum hafa allir reynslu í þjálfun eða umönnun barna í Mjölni.
Þetta námskeið er fullkomið fyrir þá sem vilja:
Tímabil:
10.-14. júní - (5 DAGA NÁMSKEIÐ)
18.-21. júní - (4 DAGA NÁMSKEIÐ)
1.-5. júlí - (5 DAGA NÁMSKEIÐ)
Innifalið í gjaldi er:
Kynningarmyndband með Gunnari Nelson
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










