Mjölnir open 11 - skráning hafin
5. apríl 2016
Mjölnir Open 11 verður haldið í Mjölniskastalanum, Seljavegi 2, laugardaginn 23. apríl og er skráning hafin.Mjölnir Open hefur lengi verið stærsta NoGi uppgjafarglímumót sem haldið er á Íslandi en þetta er í 11. skiptið sem mótið er haldið. Keppt verður í þyngdarflokkum kvenna og karla og í opnum flokkum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir uppgjafartak mótsins.
Skráðu þig hér !
Skráningu lýkur miðvikudaginn 20. apríl kl. 21:00. Skráningargjald er kr. 4.000 og fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku.
Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er kr. 500.
Keppt verður í fimm þyngarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka.Karlar:-66 kg-77 kg-88 kg-99 kg+99 kgKonur:-60 kg-70 kg+70 kg
Keppnisreglur á Mjölnir Open
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










