Mjölnir í öskjuhlíðina
30. nóvember 2015
Afmælisdagsskráin hófst upp í Öskjuhlíð þar sem um 200 manns létu sjá sig og hlýddu á kynningu Jóns Viðars á framtíðarstarf Mjölnis. Auðvitað var boðið upp á afmælisköku en hún var bökuð af MjölnismanninumHilmir Hjálmarssonhjá Sveinsbakarí. Einnig voru í boði ljúffengar veitingar, en þær voru í boði vina okkar áVegamótum. Í kynningunni var m.a. frumsýnt nýtt kynningarmyndband, húsnæðisskipulagið kynnt, nýtt gráðunarkerfi, breytingar á barnastarfinu, nýtingu Öskjuhlíðarinnar til útiæfinga og helsti samverustaður Mjölnismanna, Drukkstofa Óðins, kynnt til sögunnar. Þetta verður allt kynnt á Mjölnisfaceinu í vikunni.
Að þessu loknu var haldið upp í Egilshöll þar sem frumsýndur var þáttur Auðuns Blöndal um Gunnar Nelson sem tekinn var upp í Las Vegas fyrir bardagann á móti Brandon Thatch.
Um kvöldið var svo haldið Mjölnispartý eins og þau gerast best. Sturla Atlas mætti á svæðið og kom liðinu í gírinn og DJ Young Nazareth sá svo um að halda partýinu gangandi fram á nótt. Fyrir þá sem þekkja þá eru partýin okkar engu lík.
Myndirfrá afmælishátíðinni.