Keppnisliðið á mma evrópumeistaramót í prag 22.11
11. nóvember 2016
Í lok nóvember halda átta liðsmenn keppnisliðs Mjölnis halda til Prag í Tékklandi til að taka þátt áEvrópumeistaramóti áhugamanna í MMA. Mótið fer fram dagana 22. til 26. nóvember og er um að ræða útsláttarfyrirkomulag. Keppt er á tveimur völlum í Arena of Sparta og mega keppendur eiga von á því að berjast tvisvar sinnum yfir daginn ef þyngdarflokkurinn er fjölmennur. Mótið var haldið í nóvember á síðasta ári í Birmingham á Englandi og komum við heim með tvo Evrópumeistara í sínum þyngdarflokkum,Bjarka Þór PálssonogSunnu Rannveigu Davíðsdóttur. Einnig tók Pétur Jóhannes Óskarsson brons í þungavigt. Mótið er opið MMA áhugamönnum frá löndum sem eiga aðild að IMMAF samtökunum. Mest geta verið 32 keppendur í hverjum þyngdarflokki fyrir sig sem telur frá fluguvigt ( 56.7kg ) upp í súperþungavigt ( +120.2kg ) í karlaflokki og strávigt ( 52.1kg ) upp í fjaðurvigt ( 65.8kg ) í kvennaflokki.
Keppendur okkar eru þau:
Við munum gera ferðinni góð skil á samfélagsmiðlum okkar, Facebook, Instagram og Snapchat (mjolnirmma). Fylgstu með!
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










