Íslendingar hafa lokið þátttöku á hm áhugamanna í mma
14. nóvember 2018
Ísland er úr leik á HM áhugamanna í MMA í ár en þriðji dagur leikanna var í dag. Björn Þorleifur Þorleifsson og Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir voru komin í 8 liða úrslit í sínum flokkum en þurftu bæði að játa sig sigruð í dag. Björn á armlás og Ingibjörg á dómaraúrskurði. Bæði mættu þau öflugum andstæðingum. Björn mætti tvöföldum Evrópumeistara bæði þessa árs og í fyrra, Ítalanum Dario Bellandi, og Ingibjörg mætti ríkjandi Asíumeistara, Nurzhamal Sadykova frá Kasakstan.Halldór Logi Valsson og Kári Jóhannesson féllu út í gær og þeir Ásgeir Marteinsson og Oliver Axfjörð Sveinsson á mánudaginn. Íslenski hópurinn kemur ekki heim með verðlaun af Heimsmeistaramótinu í ár en verður reynslunni ríkari.
Nýjustu fréttir
Sjá meira ->










