Heilaskurðlæknirinn dan healy með fyrirlestur í mjölni
12. febrúar 2019
Prófessor Dan Healy er staddur í fríi hér á landi en hann er einn af stofnendum SafeMMA á Írlandi en samtökin (sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni) votta að bardagakeppnir á Bretlandi og Írlandi fylgi öllum helstu öryggisreglum fyrir keppendur.
Hann er einnig í læknaráði IMMAF (International MMA Federation) sem veitir leiðarvísi að öryggi keppenda í íþróttinni. Healy hefur lengi unnið með John Kavanagh og þekkir íþróttina mjög vel. Þá hefur hann sjálfur stundað hnefaleika og er mikill áhugamaður um bardagaíþróttir almennt.
Healy mun eins og áður segir halda fræðslufund fyrir keppendur Mjölnis í MMA og hnefaleikum um heilahristing, öryggi í íþróttinni og fleira. Fyrirlesturinn er þó opinn öllum en Mjölnir var í nóvember 2017 fyrsta íþróttafélagið til að haldaopinn fræðslufund um þessi mál.