Grettismót mjölnis 2023
21. nóvember 2023
Mót fullorðinnahefst klukkan 10 á laugardeginum en keppendur eru beðnir um að mæta kl. 09:00. Vigtað er í gi á mótsdag. Aldurstakmark keppenda er 18 ár en 16-17 ára geta keppt að fengnu leyfi þjálfara og forráðamanns. Keppt verður í fimm þyngdarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka.
Skráning fer alfarið fram á Smoothcomp á tenglinum:https://smoothcomp.com/en/event/14088
Þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar um mótið, reglur, þyngdarflokka og fleira, sem og áFacebooksíðu viðburðarins.
Skráningarfrestur rennur út kl. 23:00 fimmtudaginn 23. nóvember og greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða íSportabler.
Grettismót ungmennahefst kl. 10 á sunnudeginum en þetta er í þriðja sinn sem þetta ungmennamót er haldið.
Eins og fram hefur komið er mótið fyrir 5-17 ára ungmenni og er keppt í galla (gi).
Skráning fer alfarið fram á Smoothcomp á tenglinum:https://smoothcomp.com/en/event/14380
Þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar um mótið, reglur, þyngdarflokka og fleira, sem og áFacebooksíðu viðburðarins.
Skráningu lýkur kl. 23 fimmtudaginn 23. nóvember og er ekki hægt að skrá sig þegar skráningarfresti er lokið. Skráningargjald er 3.000 kr. og greiðsla fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða íSportabler.