Góð ferð á headhunters f.c. í skotlandi
17. september 2017
Myndir frá bardaga SigurjónsBardagi Sigurjóns Rúnars á Facebooksíðu MjölnisBjarki Eyþórssonvar næstur Íslendinganna í búrið en eins og Sigurjón mætti hann heimamanni í Stu George. Líkt og í hinum bardaganum voru Bjarki og Stu að stíga sín fyrstu spor í MMA keppni. Heimamaðurinn byrjaði bardagann á lágsparki og Bjarki svaraði með tveimur höggum. Stu reyndi annað lágspark en Bjarki var viðbúinn því, greip fótinn og felldi Stu. Bjarki sýndi góða vinnu í gólfinu og ekki skemmdi að hafa Gunnar Nelson í horninu kallandi inn leiðbeiningar. Svo fór að Bjarki náði yfirburðastöðu á bakinu á heimamanninum og sem stóð upp með hann en Bjarki gaf sig ekki, hélt sig á bakinu á Stu og náði að lokum ljónsbananum, hengingunni sem Gunnar er svo þekktur fyrir, og neyddi Stu til uppgjafar eftir 2:20 mín. í fyrstu lotu. Frábær frammistaða hjá Bjarka í hans fyrsta bardaga.
Myndir frá bardaga BjarkaBardagi Bjarka á Facebooksíðu MjölnisÞriðji Mjölnimaðurinn í búrið varBjörn Lúkas Haraldssonen þetta var hann annar MMA bardagi. Björn Lúkas er hins vegar þrautreyndur keppnismaður í brasilísku jiu-jitsu, judo og taekwondo. Líkt og félagar hans mætti Björn Lúkas einnig heimamanni, Georgio Christofi, sem var 1-0 fyrir bardagann líkt og Björn. Skemmst er frá því að segja að Björn Lúkas hafði algjöra yfirburði í bardaganum og hóf hann af miklum krafti með flottu snúningssparki og svo öðru sparki í kjölfarið. Björn Lúkas náði svo flottri fellu, stýrði bardaganum í gólfinu og tók bakið á andstæðingi sínum. Georgio varðist hins vegar vel og náði að lokum að koma Birni Lúkasi af bakinu á sér en þá tók ekki betra við því Björn læsti inn svokallaðri „triangle“ hengingu. Þá virtist endirinn óumflýjanlegur og þó Georgio verðist fimlega og næði að snúa sér þá lenti hann við það beint inní armlás hjá Birni Lúkasi og gafst upp fyrir því uppgjafartaki þegar tæpar tvær mínútur voru liðnar af fyrstu lotunni.
Myndir frá bardaga BjörnsBardagi Björns Lúkasar á Facebooksíðu MjölnisBjartur Guðlaugssonvar síðastur Íslendinganna í búrið en Bjartur var með tvo sigra og tvö töp á sínum áhugamannaferli fyrir bardagann. Hann mætti hinum efnilega Skota Hayden Murray í öðrum aðalbardaga kvöldsins en heimamaðurinn var 4-1 á sínum MMA ferli og hafði unnið síðustu fjóra bardaga sína, þar af þrjá á rothöggi eða uppgjafartaki. Það var því ljóst að á brattann væri að sækja fyrir Bjart. Íslendingurinn var hins vegar hvergi banginn og fyrsta lotan var nokkuð jöfn þar sem Bjartur stýrði henni í byrjun en Hayden náði þó undirtökunum seinni part lotunnar. Önnur lotan var svipuð en Hayden náði þá fellu á Bjart og endaði lotuna í betri stöðu. Sama var uppá teningnum í þriðju lotunni þar sem Hayden náði aftur fellu en Bjartur komst þó næst því að klára bardagann með svokallaðri „guillotine“ hengingu sem Skotinn náði þó að verjast. Svo fór að bardaginn endaði í dómaraúrskurði sem féll heimamanninum í skaut. Þetta var þó góð frammistaða hjá Bjarti gegn sterkum andstæðingi.
Myndir frá bardaga BjartsBardagi Bjarts á Facebooksíðu MjölnisÍ heild geta Íslendingar vel við unað með þrjár sigra og eitt tap og tveir sigranna komu í fyrstu lotu eftir uppgjafartök.